Error

29.05.2006 20:42:49 / sigthor

Video

 

height="241" codebase="http://www.apple.com/qtactivex/qtplugin.cab" name="Eloy_Casagrande_MD_Festival_Weekend_2005">

<param name="controller" value="true">

<param name="autoplay" value="true">

<param name="src" value="http://my.opera.com/sgo/homes/blog/100_1734.MOV">

<param name="SRC" value="http://my.opera.com/sgo/homes/blog/100_1734.MOV">

<embed name="Eloy_Casagrande_MD_Festival_Weekend_2005" src="eloycasagrande.mov" src="http://my.opera.com/sgo/homes/blog/100_1734.MOV" width="400" height="241" autoplay="true"

controller="true"

pluginspage="http://www.apple.com/quicktime/download/">

</embed>


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 22:27:04 / sigthor

Hættur

Finnland vann Eurovison, fáir sem þorðu að spá því... ég spáði þeim 2 sæti Rússlandi 3 og Sviss fyrsta... Sviss kom mér svo alveg rosalega á óvart og var bara með neðstu sætunum... en ég fer samt ekki ofan af því að Kate Ryan átti að rústa þessu!

En það er víst Sjallinn á eftir og einsgott að maður komist inn, ég meina þetta verður að öllum lígindum eina skiptið sem ég fer í Sjallann undir aldri... eða bara að eg fari á bar undir aldri.

Það er orðið ljóst að ég fer í 75 nemenda skóla á næsta ári sem byrjar 13 ágúst og er samkvæmt skóladagatali til 30 júní 2007 þannig að búast má við því að ég komi heim í júlí á næsta ári...
En eins og fyrisögnin frumlega segir þá er ég hér með hættur að blogga og bara að uppfæra síðurnar mínar 2 frá og með þessu bloggi. Þetta geri í kjölfar afskaplega skemmtilegri skoðanakönnun og því að ég fór að lesa bloggið mitt og það er bara frekar leiðinlegt svo ég er hættur!

minni á að enn eru myndir á www.my.opera.com/sgo/albums/ āƏ̉呈䱍吠摩⁹潦⁲楗摮睯⁳瘨牥⁳猱⁴敆牢慵祲㈠〰⤳‬敳⁥睷⹷㍷漮杲

» 6 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 20:56:21 / sigthor

Sunnudagurinn Súrelski - 2 útgáfa

Jæja góðan daginn. Núna sit ég í enskutíma að horfa á snargeðveika leikþætti og að fara í alveg úper "skemmtilegt" spil! en annars þá er ég búinn að vera á krók um helgina og við vorum að fá nýjan bíl. Hyundai Tratjet flottur bíll samt frekar kassalaga fyrir minn smekk en fínn samt sem áður.

Heimferðin var samt frekar skrautleg... Ég var kominn til Varmahlíðar og reyndar sestur upp í rútu og búinn að borga. Þá hringi ég í Benjamín að forvitnast um það hvar í ósköpunum hann er þar sem ég hélt hann ætlaði með rútuni. hann segir mér að hann sé með Eyjólfi og býður mér að bíða í hálftíma eftir þeim en þar sem rútan var að fara á stað eftir stuttan tíma ákvað ég að vera áfram um borð í rútuni auk þess sem sjoppan var loka allavega voru konurnar byrjaðar að reka fólk út þá ákvað ég að afþakka þetta góða boð. Talandi um hversu heimskulegt það er. Svo fór ég með rútuni upp á vist kom þar inn og fattaði að veskið mitt var enn í rútuni. Þá mætti ég Benjamín og Eyjólfi koma inn þegar ég var að hlaupa niður á Leiru að ná í veskið mitt. Á leiðinni þagað tókst mér að rífa upp smávægilegu togunina sem ég var nánst laus við svo frekar fílalegur sunnudagur hjá mér.

En þar sem nú er kominn dönskutími og kennarinn alveg tryllast á mér fyrir að ver í tölvuni og hún (tölvan) alveg að verða batteríislaus.

Já og nú í þriðja sinn sem ég held áfram að skrifa þennan pistil þá er ég upp á vist. En ný skoðanna könnun hefst núna snýst um hvort ég á að blogga áfram, ég nefninlega verð að vita hvort fólk nennir að lesa þetta... hefst núna og tek könnunina út eftir viku.

Og þið íslenskufræðingar sem lesið þetta blogg hvað þýðir orðið Súrelskur nákvæmlega ??

Sigþór.

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 14:15:22 / sigthor

Mafían á vistinni!

Nú sit ég í þýsku eina ferðina enn og skil ekki baun í bala um hvað er verið að tala... ég verð að fara að taka mig á hérna...

En það er víst frekar langt síðan ég bloggaði síðast og það er komið að því að laga það. En ég var að halda fyrirlestur áðan með 9 öðrum nemendum um Veiðmanna og safnara samfélag; versta verkefni sem ég hef flutt á ævinni einfaldlega sökum þess að við vorum of mörg í hóp!!

En það skal her með tilkynnt að ég á bókað flug Laugardaginn 12. ágúst kl.7:15 til kaupmannhafnar og byrja ég í skólanum daginn eftir. Ég vinn minn síðasta vinnudag 10 eða 11 ágúst geri ráð fyrir því að það verði 11 ágúst. Svo það er mjög þröng áætluninn í sumar. En verður samt bara gaman, er þaggi Benjamín og Eyjólfur jækvæðu?

En Sma samsæris kenning kom upp um ljómyndakeppni íbúa vistarinnar þar sem 1 verðlaun voru stafræn myndavél frá Office one. Í dómnefnd voru starfsmenn heimavistar og hver haldiði að hafi unnið jú Simmi húsbóndi!!! fékkk fyrir ljota mynd sem var alls ekki jafn flott og margar myndirnar þarna!! þetta er mjög gott dæmi um spillinguna á vistinni!

En annars þá óska ég þeim sem eru í prófum góðs gengis í þeim prófum sem eftir eru:D eða alla vega flestum ykkar!

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 15:46:57 / sigthor

Skítavist

Smá svona hugleiðing...
Nú er ég kominn aftur í aðsetur mitt eftir páskafrí. Ég verð að segja að ég er farinn að gruna mötuneyti heimavistar um græsku. Ég meina þegar ég lifi á mötuneytismatnum fæ ég í magan og nokkurnveginn skitu. Þetta er ekki alveg að ganga og hafa sumir talið þetta stafa af illa þvegnu leirtaui(engin nöfn nefnd en þessir sumu byrja á S og enda á óley).

Ég hugsa samt að það sé rétt hjá sumum að þetta stafi af leirtauinu ég meina það skiptir engu hvað í læt ofan í mig heima, ég fæ aldrei svona magaverki.
Svo gæti ég líka bara gert tilraun og komið með mitt eigið leirtau úr papa þar sem ég er nú ekki besti uppvaskari í heimi... og séð hvort að þetta er maturinn, leirtauið eða bara loftið hérna á Akureyri!!
Spurning um að panta hreilbrigðiseftirlitið á staðinn!!?

Ég hlakka samt orðið mikið til að komast út til DK þar sem ég fékk inn í Ega og byrja ég þar 13. ágúst! Öllum sem lesa þetta blogg til mikillar ánægju.


En þá er þetta bara komið í bili.





» 12 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 13:52:16 / sigthor

Rugludallurinn ég

24 apríl
24 dagar síðan ég bloggaði síðast.
Þetta er nátturlega ekki nógu gott. Þannig ég ákvað að gera eitthvað í þessu. Ég gæti byrjað og skrifað alveg heili blaðsíðurnar um strætó kerfi Reykjvíkurborgar og þá meina ég alls ekki á jæakvæðan hátt.
Ég gæti líka ruglað öllu sem mér hefur verið sagt um menningarferðina og því sem ég sjálfur veit að gerðist í einn hræri graut þannig að ekki einu sinni ég sjálfur myndi skilja það. En ég hugsa að ég sleppi því.
Ég er nefninlega síktur af einhverri ákaflega óþægilegri veiki sem ég ræð hreinlega ekket við.Ég er síktur af ruglunni!! Þá er ég víst farinn að rugla öllu sem ég geri segja og heyri saman og skil ekkert sjálfur í því sem ég hef verið að gera. Sem er nátturlega ekki nógu gott þar sem mér finnst mjög mikilvægt að sá sem sjúkdómsgreindi mig skilji mig...

En annars þá er það sem ég hef mest staðið í er fermingarveisla bræðra minna síðasta laugardag... ég segi veisla þar sem ég kom ekki nálægt ferminguni sjálfri, það er eitthvað sem að kemur mér hreinlega ekket við.

En þar sem þetta er nátturlega fyrsta blogg eftir páska þá verð ég að nefna páskaballið í Miðgarði sem var mjög fínt... samt sem áður þá fannst mér einhvernveginn eins og ég væri ekki alveg inn í því sem var að gerast. Sumir sögðu já það er svona að drekka ekki... og ég gat hreinlega engu svarað.

En þá ætla ég að hætta núna en mynni á nýjar myndir á www.my.opera.com/sgo

Var þetta nokuð alger steypa?

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 01:38:23 / sigthor

krókurinn


Já Góðan daginn!
Það er komið að loka tilkynninguni! Ég hef loksinns gert upp hug minn með hvað ég geri á næsta ári.

Ég sótti um í FNV í gær og mun væntanlega innritast á náttúrufræðibraut þar á næsta ári. Ég hef sjálfur ákveðið að byrja aftur í körfu og fótbolta. Þannig að það verður þrefalt comeback á næsta ári og mig er byrjað að hlakka geðveikt mikið til.

Ég verð nátturlega á vistinni þar sem mamma og pabbi eru að fara út en það hefur verið mikið pressað á mig og mig langar að koma heim. Svo er ég bara virkilega mikið farinn að sakna Körfu og fótbolta... Ég meina að komast í alvöru lið og keppa, það gerist ekki betra. Ég var í Þór hérna í byrjun árs og það var svo lélegt lið að þetta var hryllilegt... Ömurlegir leikmenn að spila sem algjörir einstaklingar en ekki lið. Það mun alldrei ganga eins og dæminn hafa sannað m.a. eitt hjá Real Maddrid.

Ákvörðuninn um að fara aftur á Krókinn kom líka af þeirri ástæðu að Akureyri sökkar feitan og mér hefur aldrei virkilega líkað að vera hérna... Ég meina ég hef verið að fara mjög oft heim um helgar bara vegna þess að mig langar ekki að vera á Akureyri ég meina Djammið hérna er enngan veginn að ná þeim staðli sem settur er heima.

Eins og sjá má hef breytt bannernum á síðuni í tak við þessa nýjum breytingu sem ég vona að hafi komið flestum í opna skjöldu þar sem ég gerði mitt besta að halda þessu lendu alveg þangað til að þetta yrði 100% öruggt.

Íþróttamanninn dreymir um annað tækifæri.... ég ætla að fá það!

Sigþór

» 20 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 13:06:58 / sigthor

að fara eða ekki fara... það er spurningin!

Nú þegar altof langt er síðan ég skrifaði síðast hefur margt breyst! Ég er búinn með bæði ökuprófin og kominn með ökuleyfi!!!!

En margt annað hefur gerst á þessum tíma: Svona til að byrja með þá var ég á króknum í gær og um leið og ég keyrði frá staðnum kom heljarinnar óveður sem víst að hafa orðið til þess að ekki sást milli húsa.

Svo svona til þess að gleðja fólk ennþá meira með æsilegum fréttum þá hef ég nú lokið við þýsku heimasíðu með Bjarna verðandi Dana. En okkar þriðji hópmeðlimur er frekar óvirkur í hópastarfi.

Ég ætla svo að reyna að komast á krókinn um helgina svona þannig ég geti örugglega keyrt nægju mína þar sem það er frekar fúlt að vera svona nýkominn með ökuleyfi og geta ekki keyrt:S

Já og þá er komið að því aðal tilkynning þessa bloggs, já nei það var ekki að ég væri kominn með bílpróf og það var ekki ég væri búinn með einhverja heimasíðu sem fólki gæti ekki verið meira sama um!
Heldur er ég búinn að ákveða hvað ég geri næsta vetur! Já það er rétt til getið ég mun beila á króknum aftur og sný ekki til baka en svo er það skoðanakönnuninn sem nú fer í gang!

á ég að fara til Danmerkur eða ekki?

svarmöguleikarnir eru:

að sjálfsögðu; Þýðir sem sagt að ég á að fara án þess að hugsa mig nokkuð um bara flana út og gera eitthvað

Já en... ; þýðir að ég eigi að velja mér góðan skóla fyrst og ef hann finnst ekki þá ekki fara

NEI! ; síðasti kosturinn þýðri einfaldlega: Já NEI ekki fara, ekki séns!!!!

Könnunin rennur svo út 31. mars!

.

» 9 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 10:48:07 / sigthor

Kerfisbilun er fundin... vinsamlegast talið við lækni

Wednesday, 8. March 2006, 15:42:01

Fun
Já það er langt síðan síðast... Ég hef reyndar byrjað að blogga svona fimm sinnum en fannst þetta ekki nógu skemmtilegt blogg.

Ég ætla að byrja á smá kvörtun Íslenska Kerfið er ömurlegt, Ég þurfti að fara til læknis áðan ekki að ég væri eitthvað veikur?? heldur þurfti ég að fá mér sjónvottorð... ekki eins og ég myndi komast í gegnum prófið ef að ég væri með það lélega sjón og já ég þekki muninn á grænum og rauðum; hahahahaha

En já að aðeins skemmtilegri hlut nú er ég að klára ö2 á eftir og svo er bara að reyna að taka prófið helst á morgun en ég held ég taki það ekki fyrr en á þriðjudaginn:s En svo er verklega prófið væntanlega bara í þar næstu eða næstu viku

En Benjamín var í góðu stuði í síðustu viku; hann var að tala um hvað hann væri þreyttur ég meina hann var búinn að fara snemma að sofa síðustu 2 daga; fyrir kl 1!!!!!!

Fatlafól flakkandi um á 10 gíra spíthjólastól: Þetta er svona næstum því það sem ég var spurður a hjá lækninum áðan... ekkert smá heimskulegar spurnigar...

Já eins og sést hérna til hliðar ef þú ert á http://www.my.opera.com/sgo þá eru 25 dagar í það ég ákveð 100% hvað ég geri á næsta ári en það er allt saman í vinslu núna.

En já bara svona til að láta ykkur vita þá er myndaalmbúmið mitt á www.my.opera.com/sgo!!!

Enda þetta svo á að segja svo breytt sé aðeins vituninni í kópavogbæjarstjórann: "Það er gott að búa á Sauðárkróki!!

» 9 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 23:58:40 / sigthor

Dýrin í 10.bekk

Já kjallinn var á sýningu áðan, Dýrin í hálsaskógi eða Dýrin í 10. bekk og í gær lofaði ég harðorðri gagnrýni and here it is:

Dýrin í Hálsaskógi Sunnudagur 26. febrúar kl.15:00
Tekið skal fram að Lilli litli klifurmús var leikinn af Bryndísi á þessari sýningu.

Byrjum á grunnatriðum:
Tæknimenn: 100% dagur hjá ykkur get ekkert set út á þá virtust allavega spot on til hins almenna áhorfenda.
Sviðsmenn: Gerðu þó nokkur mistök miðað við 6 sýningu(lámark... gætu verið fleiri) sem dæmi sáust þeir labba bakvið og þegar nánast almyrkur var á sviðinu og atriði í gangi þá kveyktu þeir á vasaljósi. Og þar sem þetta er 6 sýning þá segi ég þó ómögulega og til þá það eitt það versta við þessa sýningu.
Lýsingin í þessu verki er frábær og einnig öll umgjörð sem hefur að ég held aldrei verið betri. Mun veigameiri sviðsmynd en nokkurntíman hefur verið áður en bauð leikritið upp á það.(ekki að önnur leikrit hafi ekki gert það.
Miðasala: spot on með allt
Búningar mjög veigamiklir og flottir.Líklega aldrei jafn mikið í þá lagt.
Leikur:
Já leikur... hann er víst partur af þessu en það virðist hafa gleymst í einhverjum tilfellum. ég ætla að hrósa sérstaklega 3 bestu leikurunum í sýninguni: Ingva Aroni, Ægi og Áslaugu. Það voru fleiri góðir en þessi voru best. Þessir bestu voru þó engan veginn að ná upp standard sem mér var sagt að leikritið væri í.

Samantekt:
Mér var sagt að leiritið væri að toppa allt sem gert hefur verið þar á meðal Rocky Horror; Viðskiptalega er rétt þar sem um er að ræða barnaleikrit sem allir yngri krakkar vilja fara á. Öll umgjörð var hinsvegar betri en nokkru sinni áður og óska ég þeim til hamingju með það. Leikurinn var samt alveg í sama standard ef ekki lélegri en áður. Vantaði alveg gríðarlega mikið að hafa stráka í leikhópnum sem greinilega nenntu ekki að vera með.
Ég neita því að þetta sé betra en önnur leikrit en set þó varan á að þetta er betri umgjörð en áður.
gef leikritinu 3 og hálfa stjörnu og stærsti mínusinn er sviðsmenn. mest hægt að fá fimm.

að lokum takk fyrir mig flott sýning.

» 10 hafa sagt sína skoðun

25.02.2006 18:50:48 / sigthor

frá SAK til AEY

Já nú er maðurinn á króknum að skoða og lesa danska bækilinga sem voru sendir hingað í vikunni. ÞAr eru ýmsar skemmtilegar upplýsingar eins og þær að skólinn* sem ég hef hingað til mest verið að spá í er ekki búinn fyrr 30 juní 2007 sem verður að teljast ansi slæmt....

Stunu könnuninni er lokið eins og þeir sem hafa lesið bloggið mitt vita. Niðurstöður verða hér með byrtar:

Rannsókn á stunum Akureyri, janúar 2006

Afhvejru koma stunur?
Þær virðast vera viðbrögð við miklu álagi á vöðva. þetta er samt bara óstafestar fregnir að nánast er alveg talið ómögulegt að þær komi nokkurn tíman til með að tengjast streitu.

hvað eru stunur?
Þetta er óhljóð sem líkaminn gefur frá eins og áður sagði við mikið álag á vöðva.

Könnuninn var óformleg og var gerð í kjölfar pælinga minna hér á bloggsíðuni. Stunur eru sem segt eitthvað sem líkaminn þrýfst á og án þeirra líður fólki illa.

Annarrs þá var krókurinn dauður í gær svona allavega miðað við það sem ég heyrði en það getur vel verið ég sé nátturlega bara ekki látin vita af hlutunum...

minni á að ég byrti bloggin mín enn þá einnig á http://www.my.opera.com/sgo
*www.euh.dk

Já og svo er ég að fara á Dýrin í Hálsaskógi á morgun og miðað við sögurnar þá er ég að fara á leiksýningu aldarinnar. En pottþétt harðorð gagnrýnir hér á morgu( harorð gagnrýni getur að sjálfsögðu bæði verið jákvæð og neikvæð)

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 12:53:25 / sigthor

Valentínus Hjartaknúsari

Eg var svona að spá...
Afhvjeru heitir þessi dagur Valentínusardagur. Ég meina var virkilega svona svakalegur karl sem elskaði alla elskendur svo mikið að nánast allur heimurinn samþykkti að nefna dag elskenda eftir honum.
Valentínus, ætli hann hafi verið skírður þetta eða nefnt sjálfan sig þetta. En svona sem dæmi þá þýðir "Valen" kaldur á dönsku þannig að það má hugsanlega þýða Valentínus sem lítill og kaldur.(tínus dregið af tiny).
Hugsanlega var þessi maður þá svo svakalega hjartakaldur að þeim þótti það skemmtilega mikil kældhæðni að nefna þennan dag Valentínusar dagur.
Þessi dagur hefði semsagt hugsanlega átt að vera dagur hjartalausra sem eru ekki næmir fyrir tilfiningum annarra...

En ég er annarrs enn búinn að vera með DK á heilanum. Ég hef ekki enn þá fundið eitthvað sem mér langar að gera í þessu landi bjórs og bauna. En leitinn stendur enn yfir og ég hef tæpar 2 vikur til að ákveða mig.

Er samt a spá í að fara að setja myndir á netið svona til að hafa aðeins skemmtilegra blogg. Hvernig væri það?

Annars sérstakar Valentínusar kveðjur til ykkar sem lesa þetta blogg, þið ráðið hvernig þið skiljið þær kveðjur.

» 11 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 15:25:46 / sigthor

ógeðslegt klukk!!!!

Þar sem þetta er ekki blogg þá býður það þar til næst að kynna niðurstöður stunukönnunarninnar....
4 stöf sem ég hef unnið um ævina :
1. Unglingavinnan....

2. Líf og leikur...

3. Mjólkursamlagið....

4. Á Áningu


4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
1. Trainspotting

2. Lord of the rings

3. Die Hard 1,2 og 3

4. Liar liar

4 staðir sem ég hef búið á :
1. Ártúni 15..

2. Háahlíð 11...
3. Vistinni á AK...
4. þar með er það upp tali..

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:
1. 24
2. House
3. Boston Legal
4. Friends

4 síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
1. www.b2.is
2. www.Skagafjordur.com
3. www.mbl.is
4. www.muninn.is

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1. Þýskaland
2. Danmörk.
3. Vestmannaeyjar
4. Svíþjóð

4 matarkyns sem ég held uppá :
1. Lambahryggur
2. frikadeller
3. súkkulaði mouse
4. fyltar kjúklingabryngur

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
1. Í RÚMINU MÍNU SOFANDI! (nota þetta bara beint frá Ragnhildi)
2. Á Sauðárkróki
3. í DK
4. bara ekki í félagsfræði....

8 bloggarar sem ég klukka:
Þar sem að þegar þetta er skrifað þá veit ekki ég um neinn sem ég vil gera það að klukka hann svo....
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 15:12:25 / sigthor

hvað sem gerist.....

hér situr maður enn og aftur að gera sig klárann undir næsta blogg. Ég hef í síðustu bloggum farið nánast upp að striki velsæmismarka en tel mig samt hafa verið réttu meginn við strikið.
Nú er komið að smá framtíðar bulli:

Min familie er að flytja til DK næsta sumar á og stefnir á að vera þar í 1 ár. Ég hef hins vegar val um það hvort ég verði eftir og held áfram í MA og bý bara á vistinni. Mér finnst þetta erfið ákvörðun vegna þess að ef ég færi út þá færi ég ekki til DK...
Svo er það eitt ef ég set stefnua á DK þá er allt eins líklegt að ég komi í FNV að því loknu þar sem ég þyrfti líklega að setjast í 2. bekk í MA þegar ég kæmi heim. Það er eitthvað sem ég gæti bara ekki sætt mig við.

FNV - Fjölbrautarskóli Norðurlands Vestra, er í augnablikinu að vinna skoðanakönnunina hér til hliðar. Hann er með rúm 60% greiddra atkvæða svo það sérst hverjir það eru sem skoða þessa síðu.

Nú hefur stunu rannsókinni verið lokið og verður niðustaðan kynnt í upphafi næsta bloggs en ég er farinn að taka til....

» 7 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 18:11:51 / sigthor

Rán

Var núna rétt áðan að horfa á ran sem var framið fyrir framan 60.000 manns plús fullt af sjónvarpsáhorfendur.

En annarrs þá er nú ekki mikið sem hægt er að tala um. Það er mikil hálka og Ása "kúl" Schumacher var á rúntinum í gær. Hún keyrði nánast yfir mig og endaði svo á ljósastaur. Verð nú að segja að það kemur ekki á óvart hversu margir fara bílveikir úr bílnum hjá henni eftir innanbæjarakstur!!!

Íslenska á morgun og svo Lífsleikni, svo eru prófinn loksinns búinn. Það var mikið!!! Hef reyndar lítið á móti svona prófum. Mikið frí sem ég hefði nú mátt nýta betur svona þegar hugsað er til baka.

Jæja það er kominn tími til að fara að skoða Dauðarósir svona áður enn maður fer nú til baka í aðseturið á Lundi.

Kveðja hinn vitri!!!!

ps. núna er einnig hægt að skoða bloggfærslur frá mér á www.my.opera.com/sgo

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Myndir